Klukkan 13:30 verður flautað til leiks á The American Express Community leikvangnum í Brighton en þar fá heimamenn lið Liverpool í heimsókn.
Sæti í 16-liða úrslitum enska bikarsins er í boði en stutt er síðan þessi lið áttust við í deildarkeppninni. Þar valtaði Brighton yfir gestina og vann þægilegan 3-0 sigur.
Byrjunarliðin voru að koma í hús og má sjá þau neðst í fréttinni.
Jurgen Klopp stillir þeim Harvey Elliot, Mohamed Salah og Cody Gakpo í fremstu stöðum og þá eru Ibrahima Konate og Joe Gomez í miðvörðunum.
Darwin Nunez, Fabinho, Joel Matip og Jordan Henderson eru allir á bekknum.
Hjá Brighton er Moises Caicedo ekki í leikmannahópnum en hann vill komast burt. Hinn ungi Evan Ferguson byrjar á toppnum.
Brighton: Steele Lamptey, Webster, Dunk, March, Mitoma, Estupinan, Mac Allister, Gross, Welbeck Ferguson.
(Varamenn: Sanchez, Sarmiento, Enciso, Undav, Gilmour, Van Hecke, Weltman, Moran, Hinshelwood.)
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Konate, Gomez, Robertson, Bajcetic, Thiago, Keita, Elliot, Salah, Gakpo.
(Varamenn: Kelleher, Fabinho, Milner, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Jones, Tsimikas, Nunez, Matip.)