Völsungur 0 - 6 Þór/KA
0-1 Sandra María Jessen ('14 )
0-2 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('17 )
0-3 Amalía Árnadóttir ('22 )
0-4 Emelía Ósk Kruger ('74 )
0-5 Sandra María Jessen ('84 )
0-6 Sandra María Jessen ('89 )
Þór/KA eru óumtvíræddir Norðurlandsmeistarar í fótbolta eftir að hafa rúllað upp Kjarnafæðismótinu.
Þór/KA spilaði við Völsung í lokaumferðinni í dag og vann sex marka stórsigur. Akureyringar enda því með fullt hús stiga úr fjórum umferðum og markatöluna 24-1. Það eru sex mörk skoruð að meðaltali á leik og 0,25 fengin á sig.
Sandra María Jessen fór á kostum og setti þrennu gegn Völsungi, en Húsvíkingar eru stigalausir eftir tvær umferðir og eiga eftir að spila tvo leiki.
Athugasemdir