Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fös 29. mars 2024 11:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tilbúinn í baráttu hjá Barcelona eftir veruna hjá Girona
Mynd: Getty Images

Eric Garcia miðvörður Girona er spenntur fyrir því að snúa til baka til Barcelona í sumar en hann er á láni hjá Girona.


Garcia er 23 ára gamall miðvörður en hann gekk ungur að árum til Manchester City frá Barcelona en snéri aftur heim árið 2021.

Hann var lánaður til Girona síðasta sumar en Girona hefur farið á kostum í deildinni og er í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir Barcelona.

„Það er hundrað prósent að ég fari aftur til Barcelona. Svo sjáum við til hvað gerist. Ég veit að það er samkeppni hjá Barcelona en ég veit líka að ég er að gera góða hluti hjá Girona. Samkeppni gerir allt betra," sagði Garcia.


Athugasemdir
banner
banner
banner