Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 29. maí 2021 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Einn besti leikmaður Inter framlengir til 2024
Alessandro Bastoni í leik með Inter
Alessandro Bastoni í leik með Inter
Mynd: Getty Images
Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Bastoni hefur framlengt samning sinn við Inter til ársins 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Inter.

Fjárhagur Inter er slæmur og þarf félagið að selja nokkrar stjörnur liðsins á næstu vikum.

Antonio Conte hætti þá með liðið eftir að hafa gert það að meisturum en þrátt fyrir þessar fregnir þá eru einnig jákvæðar fréttir úr herbúðum félagsins.

Bastoni er 22 ára gamall og hefur tekist að klófesta miðvarðarstöðu í liðinu sem hefur einnig skilað honum sæti í ítalska landsliðinu en hann framlengdi samning sinn til 2024.

Hann spilaði 33 deildarleiki á tímabilinu og er í ítalska landsliðshópnum sem fer á Evrópumótið í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner