Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 29. ágúst 2021 18:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba og Neves ósammála - Var þetta brot?
Mynd: EPA
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, segist ekki hafa komið við Ruben Neves, miðjumann Wolves, í aðdraganda sigurmarks Man Utd gegn Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Mason Greenwood skoraði sigurmark Man Utd á 80. mínútu úr þröngu færi.

Úlfarnir voru brjálaðir, þeir vildu fá brot í aðdraganda marksins. Mike Dean var hins vegar ekkert á því að dæma, og ekki þeir í VAR-herberginu heldur.

Pogba tjáði sig um atvikið eftir leik. „Ég snerti hann ekki. Þetta er enska úrvalsdeildin, þetta var 50-50 einvígi. Við unnum boltann og við skoruðum," sagði franski landsliðsmaðurinn.

Neves var á allt öðru máli. „Þetta var brot, klárt brot."

Hvað segir þú? Hægt er að sjá myndband af atvikinu hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner