Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. ágúst 2022 19:01
Ívan Guðjón Baldursson
Landsliðsfélagarnir Aurier og Boly næstir inn hjá Forest
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images

Nottingham Forest er búið að bæta átján leikmönnum við leikmannahópinn sinn í sumar og eru að minnsta kosti tveir í viðbót á leiðinni fyrir gluggalok.


Hægri bakvörðurinn Serge Aurier kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Villarreal rann út í sumar.

Aurier er 29 ára gamall og á 77 leiki að baki í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham Hotspur.

Hann á 81 landsleik fyrir Fílabeinsströndina og mun berjast við Neco Williams og Giulian Biancone um byrjunarliðssæti í hægri vængbakverði. 

Forest borgaði 16 milljónir punda fyrir Williams og 5 milljónir fyrir Biancone fyrr í sumar. Aurier skrifar undir tveggja ára samning.

Þá er liðsfélagi Aurier hjá Fílabeinsströndinni einnig á leiðinni til Forest, Willy Boly sem hefur spilað 147 leiki á fimm árum hjá Wolves.

Boly var ósáttur með lítinn spiltíma á síðustu leiktíð og heimtaði að vera seldur eftir að tilboð barst frá Forest í sumar. Hann átti að vera á varamannabekk Úlfanna um helgina en mætti ekki til að senda stjórninni skilaboð.

Boly er miðvörður og mun fylla í skarðið sem Moussa Niakhate skilur eftir að hafa orðið fyrir meiðslum. Boly mun berjast við Scott McKenna og Steve Cook um sæti í byrjunarliðinu.

Forest er með fjögur stig eftir fjórar umferðir á þessu langþráða úrvalsdeildartímabili.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner