Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. október 2019 17:15
Magnús Már Einarsson
James Morrison leggur skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
James Morrison, fyrrum leikmaður WBA og Middlesbrough, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 33 ára að aldri.

Morrison hefur verið félagslaus síðan samningur hans hjá WBA rann út í sumar.

Morrison hefur fengið nokkur tilboð en hann hefur ákveðið að hætta að spila og snúa sér þess í stað að þjálfun hjá yngri flokkum WBA.

Á ferli sínum skoraði Morrison 39 mörk í 341 leik á tólf árum hjá WBA.

Hann spilaði einnig 49 landsleiki með Skotlandi á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner