Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. janúar 2020 22:31
Ívan Guðjón Baldursson
Faxaflóamótið: Karólína og Sveindís afgreiddu FH
Mynd: Anna Þonn - fotbolti.net
Breiðablik 5 - 0 FH
1-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('2)
2-0 Rakel Hönnudóttir ('4)
3-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('41)
4-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('54)
5-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('85)

Breiðablik mætti FH í Faxaflóamótinu fyrr í kvöld og vann auðveldan fimm marka sigur.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Rakel Hönnudóttir skoruðu báðar á fyrstu fimm mínútum leiksins. Karólína bætti svo öðru marki við fyrir leikhlé og staðan orðin 3-0.

Sveindís Jane Jónsdóttir kláraði leikinn með tvennu í síðari hálfleik og lokatölur 5-0.

Breiðablik er með fullt hús stiga og markatöluna 17-0 eftir þrjár umferðir. FH er með tvö stig eftir jafntefli við Keflavík og Selfoss í fyrstu umferðunum.
Athugasemdir
banner
banner