Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. janúar 2020 18:18
Elvar Geir Magnússon
Katar: Jafntefli hjá Heimi og Aroni gegn botnliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Eftir þrjá tapleiki í röð gerði Al-Arabi 1-1 jafntefli á heimavelli gegn botnliði Umm Salal í katörsku deildinni í dag.

Heimir Hallgrímsson þjálfar Al-Arabi og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson leikur með liðinu. Aron spilaði allan leikinn í dag.

Eftir góða byrjun á tímabilinu hefur gengi Al-Arabi verið afar dapurt að undanförnu. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum.

Al-Arabi er í fimmta sæti deildarinnar, fjórtán stigum á eftir toppliði Al-Duhail.
Athugasemdir
banner