Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. janúar 2020 10:21
Elvar Geir Magnússon
Lazio og Newcastle reyna að fá Giroud
Olivier Giroud.
Olivier Giroud.
Mynd: Getty Images
Gluggadagurinn er á morgun og enn er óvíst hvað verður um franska sóknarmanninn Olivier Giroud. Þessi 33 ára leikmaður er ekki í myndinni hjá Frank Lampard og hefur aðeins spilað sjö leiki í öllum keppnum fyrir Chelsea á tímabilinu.

Mirror segir að Steve Bruce, stjóri Newcastle, muni reyna að krækja í Giroud. Hann vildi fá leikmanninn fyrr í glugganum en hélt að hann hefði tapað þeirri baráttu fyrir Inter.

Auk Inter hefur Giroud verið orðaður við Tottenham.

Þá segir ítalski íþróttafréttamaðurinn Gianluca Di Marzio að Lazio vilji fá franska landsliðsmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner