Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. maí 2022 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Ben White dregur sig úr enska landsliðshópnum
Ben White
Ben White
Mynd: EPA
Enski varnarmaðurinn Ben White mun ekki spila með enska landsliðinu í leikjunum tveimur gegn Ungverjalandi og Þýskalandi í Þjóðadeildinni í næsta mánuði.

White, sem er 24 ára gamall, var í upprunalega 27-manna hópi Gareth Southgate fyrir leikina tvo en meiddist og mun því snúa aftur til Arsenal og meðhöndla meiðsli sín hjá félaginu.

Varnarmaðurinn knái átti gott tímabil með Arsenal og var með bestu mönnum liðsins en hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir England síðasta sumar og hefur síðan þá leikið þrjá leiki til viðbótar.

Hann verður ekki með í leikjunum gegn Ungverjalandi og Þýskalandi í A-deild Þjóðadeildarinnar í næsta mánuði.

Kieran Trippier, James Ward-Prowse og Raheem Sterling mæta til æfinga á morgun og þá mun Trent Alexander-Arnold koma til móts við hópinn á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner