Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 30. maí 2022 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
PSG virkjar ákvæðið hjá Nuno Mendes
Mynd: EPA

Fabrizio Romano greinir frá því að Paris Saint-Germain er búið að virkja kaupákvæði í lánssamningi Nuno Mendes, sem nemur 40 milljónum evra.


Mendes er gríðarlega öflugur sóknarsinnaður bakvörður sem á tvítugsafmæli í sumar. Hann spilaði 37 leiki að láni hjá PSG á tímabilinu og heillaði þjálfarateymið upp úr skónum.

Mendes er orðinn fastamaður í sterku landsliði Portúgal og á 13 landsleiki að baki þrátt fyrir ungan aldur.

Hann er uppalinn hjá Sporting CP og lék 47 leiki fyrir portúgalska félagið áður en hann var lánaður til Frakklands.

Mendes er vinstri bakvörður að upplagi en getur einnig leikið sem vængbakvörður og kantmaður.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner