Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. október 2019 17:10
Magnús Már Einarsson
Lampard hæstánægður með Zouma - Hafnaði tilboðum í sumar
Kurt Zouma.
Kurt Zouma.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, segist hafa hafnað tilboðum í varnarmanninn Kurt Zouma í sumar.

Zouma var á láni hjá Everton á síðasta tímabili en hann kom aftur til Chelsea í sumar.

Hann hefur myndað öflugt miðvarðapar með Fikayo Tomori að undanförnu en Chelsea hefur unnið samanlagt sjö leiki í röð í öllum keppnum.

„Hann hefur verið stórkostlegur. Ég hafði trú á Kurt því það var áhugi á honum í sumar eftir að hann átti mjög góða lánsdvöl hjá Everton á síðasta tímabili," sagði Lampard.

„Ég hafði trú á honum sem og Tomori. Þess vegna tók ég þessar ákvarðanir á undirbúningstímabilinu hvernig við myndum spila varnarlega."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner