Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 30. október 2019 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Morata: Myndi spila tennis ef ég hefði áhyggjur af sjálfum mér
Alvaro Morata
Alvaro Morata
Mynd: Getty Images
Alvaro Morata, framherji Atlético Madrid á Spáni, skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Deportivo Alaves í gær en hann hefur engar áhyggjur af sér.

Morata er kominn með 3 mörk í 3 leikjum fyrir liðið í spænsku deildinni en það gekk þó illa hjá Atlético finna sigurmarkið og þurfti því Diego Simeone og lærisveinar að sætta sig við eitt stig.

Morata er vonsvikinn með úrslitin en hefur þó ltilar áhyggjur af eigin frammistöðu.

„Ef ég myndi hafa áhyggjur af sjálfum mér þá myndi ég spila tennis. Ég er vonsvikinn með úrslitin eins og allir liðsfélagar mínir," sagði Morata en hann var efnilegur tennisspilari áður en hann ákvað að velja fótbolta fram yfir þá ágætu íþrótt.
Athugasemdir
banner
banner
banner