Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. desember 2019 11:31
Elvar Geir Magnússon
Moyes vill fá Giroud
Giroud er 33 ára.
Giroud er 33 ára.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja að David Moyes, nýr stjóri West Ham, vilji fá Olivier Giroud frá Chelsea.

Giroud hefur aðeins byrjað þrjá leiki á þessu tímabili.

Franski sóknarmaðurinn vill yfirgefa Stamford Bridge í janúarglugganum og ólíklegt er að Frank Lampard, stjóri Chelsea. muni standa í vegi fyrir honum.

Chelsea má kaup í janúarglugganum eftir að kaupbanni félagsins var aflétt.

Lampard er sagður hafa áhuga á að fá Jadon Sancho frá Borussia Dortmund. Sagt er að vængmaðurinn ungi vilji snúa aftur í enska boltann en Liverpool og Manchester United fylgjast með stöðu mála hjá honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner