Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. desember 2022 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Lokað í Jóa útherja í dag vegna útfarar Magga Pé
Mynd: Jói útherji

Í dag, 30. desember, verður lokað í verslunum Jóa útherja vegna útfarar Magnúsar V. Péturssonar stofnanda verslunarinnar.

Útförin verður klukkan 13:00 í Neskirkju.


Magnús V. Pétursson, Maggi Pé, var einn ástsælasti fótboltadómari þjóðarinnar en hann  lést á Landspítalanum 9. desember síðastliðinn. Hann var fæddur 31. desember árið 1932 og hefði því orðið níræður á morgun, gamlársdag.

Magnús var mjög áberandi í dómgæslu hér á landi en var líka milliríkjadómari og dæmdi fjölda leikja á erlendri grundu þar sem hann kynntist mörgum goðsögnum fótboltans.

Magnús var í hópi þeirra 38 drengja sem stofnuðu knattspyrnufélagið Þrótt árið 1949.

Hann stofnaði einnig verslunina Jóa útherja árið 1999 ásamt Valdimar syni sínum sem stýrir fyrirtækinu í dag.

Maggi Pé þótti einstaklega skemmtilegur maður og í byrjun árs 2014 var hann gestur í útvarpsþættinum Fótbolta.net og sagði skemmtilegar sögur úr fótboltanum.

Fótbolti.net vottar aðstandendum og vinum Magga samúð sína.

Smelltu hér til að hlusta á sögustund Magga í útvarpsþættinum Fótbolta.net


Athugasemdir
banner
banner