Það er leikið í Lengjudeild karla í kvöld.
Þór fær ÍBV í heimsókn á Akureyri kl 17:30 en leikurinn átti að fara fram 20 ágúst en var frestað þar sem Eyjamenn voru í sóttkví. Kórdrengir fá Víking Ólafsvík í heimsókn en þessum leik var frestað fyrir mánuði síðan vegna smita í herbúðum Kórdrengja.
Vestri heimsækir síðan Aftureldingu en sá leikur átti að fara fram þann 19 ágúst en var frestað vegna þess að leikmenn Vestra voru í sóttkví.
Síðari leikir í 8 liða úrslitum 4. deildarinnar fara fram í kvöld. Kría og Hamar mætast en fyrri leikur liðanna fór 1-1. Vængir Júpíters og Árborg gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leik liðanna. Það var markalaust í viðureign KH og Ýmis en Kormákur/Hvöt vann Álftanes 1-0.
Lengjudeild karla
17:30 Þór-ÍBV (SaltPay-völlurinn)
18:00 Kórdrengir-Víkingur Ó. (Domusnovavöllurinn)
18:00 Afturelding-Vestri (Fagverksvöllurinn Varmá)
3. deild karla
20:30 ÍH-Ægir (Skessan)
4. deild karla - úrslitakeppni
19:00 Vængir Júpiters-Árborg (Fjölnisvöllur - Gervigras)
19:00 Álftanes-Kormákur/Hvöt (OnePlus völlurinn)
19:00 Kría-Hamar (Vivaldivöllurinn)
20:00 KH-Ýmir (Valsvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir