Inter Miami kaupir ungan leikmann frá Argentínu (Staðfest)
Bandaríska félagið Inter Miami hefur fyllt síðasta lausa útlendingaplássið með kaupum sínum á argentínska miðjumanninum Facundo Farias en hann kemur frá Colon í heimalandinu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25175 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Bandaríska félagið Inter Miami hefur fyllt síðasta lausa útlendingaplássið með kaupum sínum á argentínska miðjumanninum Facundo Farias en hann kemur frá Colon í heimalandinu.
Ítalska félagið Atalanta keypti í dag sóknarmanninn El Bilal Toure frá Almería fyrir metfé eða 30 milljónir evra.
Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani hefur fengið samningi sínum hjá Valencia rift eftir að hafa spilað aðeins eitt tímabil með félaginu.
Hollenski varnarmaðurinn Nathan Aké skrifaði í dag undir samning við Manchester City til næstu fjögurra ára en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
<p>Wesley er genginn til liðs við Stoke eftir erfiða tíma hjá Aston Villa. Hann gerir eins árs samning við Championship félagið.</p>
<p>PSG hefur staðfest að Mauro Icardi sé búinn að gera samning við Galatasaray.</p>
<p>Ion Perello Machí er genginn til liðs við Fram en hann kemur til liðsins frá Þór Akureyri.</p>
Calvin Bassey er genginn til liðs við Fulham frá Ajax en hann gerir fjögurra ára samning við félagið. Fulham hefur rétt á því að framlengja um ár til viðbótar.
Luton hefur fengið Ryan Giles í sínar raðir frá Wolves og er hann sjötti leikmaðurinn sem Luton fær í sumar. Liðið vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor og er verið að þétta raðirnar fyrir komandi átök. Giles er 23 ára örvfættur vængbakvörður og er kaupverðið óuppgefið en er talið vera í kringum 5 milljónir punda.
Keflavík hefur bætt við sig framherjanum Robert Hehedosh fyrir átökin í Bestu deildinni.
Ernest Slupski er kominn með leikheimild hjá ÍR en hann kemur til félagsins á láni frá Þrótti út tímabilið. Hann hefur leikið ellefu leiki með Þrótti á þessu tímabili en þetta er annað tímabil hans hjá félaginu. Hann kom vel inn í lið Þróttar í fyrra og hjálpaði liðinu að komast upp, en hefur ekki fundið sig eins vel í sumar. <i>„Ernest er kantmaður sem býr yfir miklum hraða og krafti sem ætti að geta nýst okkur mjög vel í sumar. Við bjóðum Ernest velkominn í Breiðholtið,"</i> segir í tilkynningu ÍR.
Manchester City er búið að selja vængmanninn Riyad Mahrez til Al Ahli í Sádi-Arabíu á 30 milljónir punda. Frá þessu greindi enska félagið í dag. Mahrez var í fimm ár hjá City en hann var keyptur til félagsins frá Leicester sumarið 2018 og vann á síðasta tímabili þrennuna með liðinu.
Færeyingurinn Kaj Leo Í Bartalstovu er búinn að fá félagaskipti í Njarðvík úr Leikni.
Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Eupen í Belgíu. Það er búið að staðfesta félagaskipti hans þangað.
Birnir Snær Ingason er búinn að framlengja samning sinn við Víking. Nýr samningur hans við félagið gildir út tímabilið 2025.
ÍA hefur kallað Martein Theodórsson til baka úr láni frá Kára en þetta kemur fram á heimasíðu Skagamanna.
Njarðvík hefur lánað Magnús Magnússon aftur í Reyni Sandgerði en Njarðvíkingar greina frá þessu á heimasvæði sínu á Facebook.
Rúmenski markvörðurinn Ionut Andrei Radu er kominn til Bournemouth á láni frá ítalska félaginu Inter.
Margrét Árnadóttir er komin aftur í Þór/KA frá Parma en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Jamal Lewis, leikmaður Newcastle United, mun eyða tímabilinu á láni hjá Watford í ensku B-deildinni en þetta staðfestu félögin í dag.