Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 05. mars 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fjórar framlengja við Þór/KA
Mynd: Þór/KA
Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir, Steingerður Snorradóttir og Una Móeiður Hlynsdóttir hafa allar framlengt samning sinn við Þór/KA til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Allar eru fæddar árið 2005 og hafa spilað mikilvægt hlutverk í hópnum síðustu ár.

Iðunn er miðvörður sem á 41 leik að baki fyrir Þór/KA ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Íslands.

Kimberley Dóra er miðjumaður sem getur einnig leyst stöðu bakvarðar. Hún hefur leikið 65 leiki og skorað eitt mark fyrir liðið, ásamt því að eiga sextán leiki fyrir yngri landsliðin.

Steingerður spilar stöðu vinstri bakvarðar og hún 30 leiki fyrir Þór/KA. Einnig hefur hún spilað níu landsleiki með U16, U17 og U19 ára landsliðunum.

Una Móður er sóknarmaður sem getur bæði spilað fremst og á kantinum. Hún á 25 leiki og 3 mörk fyrir félagið. Áður spilaði hún á láni hjá Völsungi og með Hömrunum, en hinar tvær spiluðu einnig áður með síðarnefnda liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner