Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. mars 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Máli Bellingham og Greenwood vísað frá
Jude Bellingham.
Jude Bellingham.
Mynd: EPA
Máli sem sneri að Jude Bellingham, miðjumanni Real Madrid, og Mason Greenwood, framherja Getafe, hefur verið vísað frá.

Belligham var gert að sök að hafa kallað Greenwood „nauðgara" í leik Real Madrid og Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í síðasta mánuði.

Greenwood var handtekinn á síðasta ári eftir að kærasta hans, Harriet Robson, deildi myndum af áverkum sínum sem hún sagði vera af hendi Greenwood. Hún deildi einnig hljóðupptöku þar sem hann reynir að þvinga hana til kynlífs.

Málið var látið niður falla í febrúar en hann átti þrátt fyrir það ekki afturkvæmt í hópinn hjá Manchester United og var því lánaður til Getafe á Spáni út þetta tímabil.

Það var fjallað um það í spænskum og enskum fjölmiðlum að Bellingham hefði getað fengið allt að tíu leikja bann ef hann hefði verið dæmdur fyrir að móðga Greenwood alvarlega.

Spænska knattspyrnusambandið rannsakaði málið og hefur því núna verið vísað frá þar sem ekki var hægt að sanna að fullu að Bellingham hefði sagt orðið „nauðgari". Fjallað er um það hjá Marca að hann hefði líka getað sagt orðið 'rubbish' sem þýða má sem „rusl".

Greenwood hefur skorað átta mörk og lagt upp fimm á láni hjá Getafe á tímabilinu. Á sama tíma hefur Bellingham verið algjörlega magnaður á sínu fyrsta tímabili með Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner