Salah, Rashford, Guehi, Ten Hag, Dewsbury-Hall og fleiri í pakka dagsins
   mán 08. apríl 2024 19:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jesus hrósaði Kane í hástert - „Sá besti"
Mynd: EPA

Arsenal fær Bayern Munchen í heimsókn í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun. Gabriel Jesus framherji Arsenal hrósaði Harry Kane framherja Bayern í hástert í aðdraganda leiksins.


Jesus sagði að hann hafi séð fáa jafn góða markaskorara á sínum ferli í Evrópu.

„Það vita allir hvað Harry Kane getur. Fyrir mér er hann sá besti í heiminum fyrir framan markið. Það er frábært að spila á móti svona leikmönnum, við viljum halda honum niðri og svo reynum við að vinna leikinn," sagði Jesus.

„Það er ekki bara Kane, leikmenn eins og Sane, minn fyrrum félagi, Musiala, Coman, Muller, þvílíkur leikmaður, og Gnabry."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner