Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   þri 09. apríl 2019 22:55
Arnar Helgi Magnússon
Mynd: Kane yfirgaf leikvanginn á hækjum og í spelku
Kane röltir útaf í kvöld.
Kane röltir útaf í kvöld.
Mynd: Getty Images
Harry Kane yfirgaf heimavöll Tottenham á hækjum og í spelku eftir leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Kane meiddist illa í leiknum eftir samstuð við Fabian Delph. Eftir leikinn í kvöld sagði Pochettino að Kane gæti verið frá út tímabilið.

„Þetta eru hrikalegar fréttir og í rauninni bara sorglegt, mjög sorglegt. Auðvitað vonar maður að þetta muni líta betur út en á horfðist og það kemur í ljóst á næstu dögum," sagði Pochettino eftir leikinn.

„Ég held að það sé augljóst að hann verði frá í einhvern tíma og við munum sakna hans. Mögulega út tímabilið."

Harry Kane missti af nokkrum leikjum fyrr á tímabilinu vegna meiðsla. Hann er er kominn með 23 mörk í öllum keppnum á leiktíðinni.

Mynd af Kane yfirgefa leikvanginn má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner