Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   fös 10. maí 2024 18:11
Brynjar Ingi Erluson
Staðfestir að hann verði kynntur á næstu dögum - „Engar áhyggjur, það mun gerast“
Mynd: EPA
Arne Slot, þjálfari Feyenoord í Hollandi, segir að hann verði kynntur á næstu dögum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool.

Enskir miðlar hafa greint frá því að Liverpool sé búið að ná samkomulagi við Slot.

Hann á að taka við liðinu af Jürgen Klopp eftir tímabilið en Slot hefur verið óhræddur við að tala um nýja þjálfarastarfið, þó hann hafi ekki einu sinni verið kynntur.

„Ég segi þetta í hvert einasta skipti, þetta fer að gerast hvað á hverju. Staðan er sú sama. Svona hlutir taka aðeins lengri tíma en að fara í búðina með innkaupalista og strika yfir hluti á honum.“

„Þetta eru hlutir sem þurfa að vera rétt tímasettir og allt þarf að vera leyst. Stundum eru líka aðrir hlutir tengdir því, þannig allir þessir þættir spila inn í sem þýðir að það er ekki komin tilkynning, en hafið engar áhyggjur það mun gerast,“
sagði Slot við 1908.nl.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner