Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   mið 10. mars 2021 09:02
Magnús Már Einarsson
Myndband: Ronaldo sneri sér undan á ögurstundu
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo hefur fengið talsverða gagnrýni eftir að Juventus datt úr Meistaradeildinni eftir framlengdan leik gegn Porto í gær.

Tíu leikmenn Porto náðu öðru útivallarmarki sínu seint í framlengingunni.

Sergio Oliveira skoraði þá beint úr aukaspyrnu en Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, hefur verið gagnrýndur fyrir tilburði sína í varnarveggnum þar sem hann sneri sér undan og boltinn fór framhjá honum.

„Þetta voru ófyrirgefanleg mistök. Á mínum dögum í þjálfun valdir þú leikmenn í vegginn sem voru ekki hræddir við boltann," sagði Fabio Capello, fyrrum þjálfari Juventus, um atvikið.

Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum hjá Vísi en aukaspyrnan hjá Porto kemur eftir þrjár mínútur.

Athugasemdir
banner
banner