Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 12:03
Elvar Geir Magnússon
Phillips missir sæti sitt í enska landsliðshópnum
Mynd: EPA
Kalvin Phillips hefur misst sæti sitt í enska landsliðshópnum og verður ekki valinn fyrir komandi vináttulandsleiki gegn Brasilíu og Belgíu.

The Athletic segir að Phillips verði ekki í hópnum en miðjumaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar. Hann fékk lítið sem ekkert að spila hjá Manchester City og var lánaður til West Ham í janúar.

Þar hefur hann ekki náð sér á strik og þurft að sætta sig við bekkjarsetu. Hann hefur virkað óöruggur þegar hann hefur spilað.

Það verður verkefni fyrir hann að reyna að koma sér í hópinn hjá Gareth Southgate fyrir Evrópumótið í Þýskalandi.

Phillips hefur leikið 31 leik fyrir England en bara spilað sautján félagsliðaleikii á tímabilinu og aðeins þrjá byrjunarlisleiki í ensku úrvalsdeildinni.

Jarrod Bowen leikmaður West Ham verður hinsvegar í leikmannahópnum.
Athugasemdir
banner
banner