„Þetta var ekki sérstakt. Kannski er hægt að kalla þetta ekta æfingaleik," sagði Gylfi Þór Sigurðsson eftir 1-1 jafnteflið gegn Katar í kvöld.
„Við ætluðum að pressa þá í fyrri hálfleik en vorum einhvern veginn bara djúpir. Síðan ætluðum við í seinni hálfleik að prófa að vera með fimm manna vörn, vera djúpir og verjast. Við hefðum aldrei gert það í alvöru leik á móti þeim."

Lestu um leikinn: Katar 1 - 1 Ísland
„Það gekk ágætlega en var svekkjandi og óþarfi að fá þetta mark á okkur í blálokin. Við getum verið mjög ósáttir við það hversu illa við spiluðum. Það voru stuttar sendingar milli manna sem voru að klikka."
Gylfi spilaði allan leikinn en það kom nokkuð á óvart.
„Markmiðið var að spila 45, svo vildi ég spila aðeins lengur og þetta endaði í 90. En það var ekki mikið tempó í leiknum."
Gylfi flýgur í fyrramálið til Englands og við tekur áframhaldandi verkefni við að reyna að ná Everton á beinu brautina.
„Það er mikilvægur leikur á laugardaginn gegn Crystal Palace og gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá þrjú stig þar," segir Gylfi en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir