Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   sun 17. mars 2024 23:50
Brynjar Ingi Erluson
Blendnar tilfinningar hjá Diallo - „Gleymdi að ég væri á gulu spjaldi“
Mynd: Getty Images
Hetja Manchester United, Amad Diallo, var hæst ánægður með að vinna erkifjendur sína í Liverpool, en á sama tíma vonsvikinn með að hafa fengið að líta rauða spjaldið í leiknum.

Diallo skoraði sigurmark United í uppbótartíma í framlengingu og tryggði liðinu áfram í undanúrslitin.

Hann var á gulu spjaldi fyrir markið og fékk síðan annað gula fyrir að klæða sig úr treyjunni.

Fílabeinsstrendingurinn upplifði blendnar tilfinningar eftir leikinn.

„Ég gleymdi fyrra gula spjaldinu. Ég er ótrúlega vonsvikinn með að hafa fengið rauða spjaldið, en það mikilvægasta fyrir mig var að vinna leikinn og það gegn stórliði eins og Liverpool. Þetta var stórt augnablik fyrir mig og alger draumur að rætast,“ sagði Diallo.
Athugasemdir
banner
banner
banner