Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. mars 2024 15:15
Elvar Geir Magnússon
Búdapest
Stórglæsilegt og tignarlegt hótel Íslands í Búdapest
Icelandair
Fimm stjörnur.
Fimm stjörnur.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Íslenski fjölmiðlahópurinn í Búdapest heimsótti íslenska landsliðið á hótel þess í borginni í dag.

Strákarnir okkar undirbúa sig fyrir umspilsleikinn gegn Ísrael sem fram fer á fimmtudag.

Allar aðstæður á hinu fimm stjörnu Parisi Udvar hóteli í hjarta Búdapest eru til hreinnar fyrirmyndar og hljómsveit lék fyrir hótelgesti þegar íslenska fjölmiðlafólkið bar að garði.

„Við erum hér í frábærum aðstæðum og eins og þú heyrir eru ljúfir djasstónar undir. Það er ekki hægt að kvarta undan neinu. Þetta er frábært hótel," segir Hjörtur Hermannsson landsliðsmaður en hann ræddi við Fótbolta.net í dag.

„Rosalega fínt hótel og vel séð um okkur hérna," segir Sverrir Ingi Ingason.
Athugasemdir
banner
banner