Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 19. júní 2022 10:23
Ívan Guðjón Baldursson
Atletico Madrid að krækja í Witsel á frjálsri sölu
Mynd: EPA

Belgíski miðjumaðurinn Axel Witsel er að renna út á samningi eftir fjögur ár hjá Borussia Dortmund og ætlar að halda á ný mið.


Þau eru nokkur félögin sem hafa áhuga á honum en greint er frá því í dag að Atletico Madrid sé að ganga frá samningsmálum við hann.

Witsel var í viðræðum við Marseille fyrr í sumar en náði ekki samkomulagi við félagið. Nú virðist hann vera á leið í spænska boltann þar sem hann mun berjast við Geoffrey Kondogbia, Marcos Llorente og Saúl Niguez um byrjunarliðssæti.

Witsel er 33 ára gamall og á 124 leiki að baki fyrir Belgíu. Líklegt er að hann geri aðeins eins árs samning við Atletico með möguleika á framlengingu ef félagið vill það.


Athugasemdir
banner
banner