Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. nóvember 2021 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Yfirlýsing frá Scamacca: Þeir eru ekki partur af minni fjölskyldu
Gianluca Scamacca
Gianluca Scamacca
Mynd: EPA
Gianluca Scamacca, framherji Sassuolo á Ítalíu, hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að fréttir bárust af því í gær að afi hans hefði ógnað annarri manneskju með hníf á bar í Rómarborg.

Scamacca er 22 ára gamall og uppalinn í Róm en hann spilar í dag með Sassuolo.

Faðir hans komst í fréttirnar í maí er hann gekk berserksgang á æfingasvæði Roma í maí en hann vann skemmdarverk á mörgum sögulegum munum á svæðinu.

Afi hans á bar í Róm og ógnaði hann öðrum manni með hníf í gær en nú hefur Gianluca sent frá sér yfirlýsingu og segist ekki vera í sambandi við feðgana.

„Í annað sinn á nokkrum mánuðum sé ég mig tilknúinn til að hreinsa nafn mitt frá ofbeldisfullri og óásættanlegri hegðun sem framin var af mönnum sem deila sama nafni og ég," sagði Scamacca.

„Ég lokaði á samband mitt við þetta fólk fyrir mörgum árum. Ég ólst upp með móður minni og systur. Það er fjölskyldan mín og er enginn annar partur af henni," sagði hann ennfremur.

Sjá einnig:
Faðir Scamacca vann skemmdarverk á eina titli Roma síðan 2008
Athugasemdir
banner
banner