Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 20. júní 2020 18:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Jimenez og Neto skoruðu í sigri Wolves
Mynd: Getty Images
West Ham 0 - 2 Wolves
0-1 Raul Jimenez ('73 )
0-2 Pedro Neto ('84 )

Þriðja leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni var rétt í þessu að ljúka. West Ham tók þá á móti Wolves og var staðan markalaus í leikhléi.

Raul Jimenez kom Wolves yfir með skallamarki á 73. mínútu eftir undirbúning frá Adama Traore og Pedro Neto gerði svo út um leikinn á 84. mínútu.

Hann skoraði þá eftir undirbúning frá Matt Doherty og tryggði Wolves stigin þrjú.

Wolves er nú með jafnmörg stig og Manchester United í 5. - 6. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner