Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 21. mars 2024 13:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikurinn mikilvægi í opinni dagskrá í kvöld
Icelandair
Frá æfingu Íslands í Búdapest.
Frá æfingu Íslands í Búdapest.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Ísland spilar í kvöld gegn Ísrael í undanúrslitum umspilsins fyrir Evrópumótið.

Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur, að duga eða að drepast. Ef Ísland vinnur þá fer liðið í úrslitaleik um sæti á EM en tapast leikurinn þá verða möguleikar okkar að engu.

Lestu um leikinn: Ísrael 1 -  4 Ísland

Leikurinn í kvöld er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en hann er í opinni dagskrá og því geta allir horft á leikinn.

Guðmundur Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason lýsa leiknum og sérfræðingar í myndveri verða Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson.

Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net en flautað verður til leiks klukkan 19:45.
Athugasemdir
banner
banner
banner