Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 24. mars 2024 18:43
Brynjar Ingi Erluson
Arnór Gauti og Eyþór Wöhler kallaðir í U21
Eyþór Aron Wöhler kemur inn í hópinn
Eyþór Aron Wöhler kemur inn í hópinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Gauti Jónsson og Eyþór Aron Wöhler hafa verið kallaðir inn í U21 árs landsliðið fyrir leikinn gegn Tékklandi í undankeppni Evrópumótsins.

Ísland mætir Tékklandi á þriðjudag í hörkuleik ytra en Ísland hefur unnið tvo leiki og tapað einum í riðlinum.

Benoný Breki Andrésson og Óli Valur Ómarsson eru fjarri góðu gamni og verða ekki með gegn Tékkum og því hefur Davíð Snorri Jónasson, þjálfari landsliðsins, kallað inn tvo leikmenn.

Arnór Gauti og Eyþór Aron Wöhler koma inn í hópinn. Arnór var frábær með Fylkismönnum á síðustu leiktíð og samdi síðan við Breiðablik eftir tímabilið.

Eyþór er einnig á mála hjá Blikum, en hann spilaði bæði með Blikum og HK á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner