Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 28. apríl 2021 14:30
Magnús Már Einarsson
Harvey Barnes nær ekki EM
Mynd: Getty Images
Harvey Barnes, leikmaður Leicester, kemur ekki til greina í EM hóp Englendinga í sumar.

Barnes fór í aðgerð á mjöðm í febrúar og reiknað var með að hann yrði frá keppni í sex vikur.

Nú er hins vegar ljóst að endurkomunni mun seinka og Barnes nær ekki EM í sumar.

Hinn 23 ára gamli Barnes spilaði sinn fyrsta landsleik í október en hann hafði skorað þrettán mörk og lagt upp fjögur í 35 leikjum með Leicester á tímabilinu áður en hann meiddist.
Athugasemdir
banner
banner
banner