Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 28. ágúst 2021 09:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hilmar Jökull spáir í 19. umferð Pepsi Max
Glacier
Glacier
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar valta yfir HK að mati Hilmars.
Keflvíkingar valta yfir HK að mati Hilmars.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nítjánda umferðin í Pepsi Max-deildinni fer fram um helgina. Það er hörkubarátta á toppnum sem og á botninum og mikið undir hjá flestum liðum.

Hilmar Jökull Stefánsson, harður stuðningsmaður Breiðabliks, er spámaður umferðarinnar. Valtýr Björn var með þrjá rétta þegar hann spáði í leiki síðustu helgar.

Svona spáir Hilmar leikjunum í 19. umferð.

Valur 1 - 1 Stjarnan (laugardagur 19:15)
Ég vona að bæði lið tapi, virkar það ekki? Nei þetta fer 1-1. Vinir mínir í Skeiðinni láta kannski sjá sig að Hlíðarenda, það væri gaman.

KA 2 - 0 ÍA (sunnudagur 16:00)
Ég er rosalega vinsæll hjá KA-mönnum þessa dagana og vil bara nýta þennan leik til að spá þeim sigri og senda kveðjur á Dodda Makan vin minn sem var ofboðslega reiður yfir því að ég bað Þórsara um hjalp.

FH 1 - 3 Víkingur R (sunnudagur 17:00)
Víkingar eru næst líklegasta liðið til að verða Íslandsmeistari í dag enda Arnar Gunnlaugs í bullinu góður þjálfari. Þeir vinna FH 1-3 easy og halda sér í toppbaráttunni.

KR 1 - 1 Leiknir R (sunnudagur 17:00)
Ég fýla Leikni í botn og ég fýla KR alls ekki en ég er hræddur um að Breiðhyltingar séu ekki jafn sterkir án Sævars Atla sem var næstum því Bliki. 1-1 og Siggi Höskulds virðir punktinn.

HK 0 - 5 Keflavík (sunnudagur 19:15)
Ég held að þessi leikur fari 0-5 af því ég tel HK ekkert geta í fótbolta og Keflavík eru bara miklu betri. Mitt faglega mat og það þarf ekkert að endurspegla mat þjóðarinnar.

Fylkir 0 - 4 Breiðablik (sunnudagur 19:15)
Þarna er leikurinn sem allir hafa beðið eftir. Stórleikur í lautinni þar sem tvö sjóðandi heit lið mætast. Besti vinur minn er Fylkismaður en ég sé samt fyrir mér sterkan 0-4 sigur og enn eitt skref tekið í átt að þessu.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner