Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 30. október 2019 19:43
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Mustafi skoraði í eigið net
Shkodran Mustafi
Shkodran Mustafi
Mynd: Getty Images
Liverpool er komið 1-0 yfir gegn Arsenal í enska deildabikarnum en það var Shkhodran Mustafi sem kom boltanum í eigið net á 6. mínútu.

Hinn 18 ára gamli Neco Williams átti frábæra sendingu upp á hægri kantinn á Alex Oxlade-Chamberlain.

Hann gaf boltann fyrir og ætlaði Mustafi að koma í veg fyrir að Rhian Brewster myndi ná til knattarins en það vildi ekki betur en að hann sparkaði boltanum í netið.

Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner