Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 31. október 2019 09:05
Elvar Geir Magnússon
Fundað um lausn fyrir Liverpool
Liverpool.
Liverpool.
Mynd: Getty Images
Talsmaður ensku deildakeppninnar segir að viðræður séu í gangi við Liverpool til að liðið dragi sig ekki úr keppni í enska deildabikarnum.

Liverpool vann Arsenal í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum eftir magnað 5-5 jafntefli og á að leika gegn Aston Villa í desember en dregið var í morgun.

8-liða úrslitin eiga að fara fram um miðjan desember, um svipað leyti og Liverpool heldur til Katar til að taka þátt í HM félagsliða.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði í gær að liðið gæti þurft að draga sig úr keppni í deildabikarnum ef ekki finnst ásættanlegur leikdagur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner