Birkir Bjarna og Guðlaugur Victor að stíga upp úr meiðslum
Birkir Már Sævarsson er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Belgíu og Katar í komandi landsliðsverkefni.
Birkir meiddist gegn Frakklandi í vináttulandsleik í síðasta mánuði og missti í kjölfarið af leik gegn Sviss í Þjóðadeildinni. Hann er í kapphlaupi við tímann fyrir komandi leiki vegna þessara meiðsla.
„Birkir Már er ekki búinn að jafna sig algjörlega," sagði Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari á blaðamannafundi sem haldinn var í Laugardalnum í dag.
„Hann er búinn að vera í endurhæfingu og kemur með okkur. Við erum í kapphlaupi við tímann gagnvart honum."
Ragnar Sigurðsson, Björn Bergmann Sigurðarson, Emil Hallfreðsson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Jón Daði Böðvarsson eru frá vegna meiðsla, en auk Birkis Más þá eru líka Birkir Bjarnason og Guðlaugur Victor Pálsson að stíga upp úr meiðslum.
Smelltu hér til að sjá hópinn.
Athugasemdir