FRÉTTIR22.08.2023, 14:30
Burnley hefur gengið frá kaupum á belgíska miðverðinum Hannes Delcroix og kemur hann frá belgíska félaginu Anderlecht.
Kaupverðið er óuppgefið. Vincent Kompany, stjóri Burnley, var þjálfari Anderlecht og lék Delcroix því undir stjórn Kompany þar.
FRÉTTIR22.08.2023, 10:33
Njarðvík hefur tilkynnt það að félagið krækti í hinn fjölhæfa Nick Kaajimolen áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
FRÉTTIR22.08.2023, 10:27
Newcastle hefur tilkynnt um komu bakvarðarins efnilega Lewis Hall til félagsins.
Hall kemur til Newcastle á láni út tímabilið en svo er skylda hjá félaginu að kaupa hann næsta sumar fyrir 28 milljónir punda. Kaupverðið gæti svo hækkað í allt að 35 milljónir punda.
FRÉTTIR22.08.2023, 07:00
Atlético Madríd hefur fest kaup á nígeríska sóknarmanninum Samu Omorodion frá Granada.
FRÉTTIR22.08.2023, 06:00
Flynn Downes er kominn til Southampton á láni út leiktíðina en hann kemur frá West Ham.
FRÉTTIR21.08.2023, 20:50
Bandaríski hægri bakvörðurinn Sergino Dest er mættur til PSV Eindhoven á láni frá Barcelona.
FRÉTTIR21.08.2023, 14:29
Færeyski landsliðsmaðurinn Petur Knudsen samdi í síðasta mánuði við bandaríska félagið El Paso. Hann skrifaðu undir samning sem gildir út árið. Hann var svo tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins fyrir helgi.
Knudsen er 25 ára sóknarmaður sem rann út á samningi hjá Lyngby í sumar. FH reyndi að fá hann í sínar raðir en Færeyingurinn vildi fara í sterkari deild. Grindavík reyndi þá einnig að fá hann í sínar raðir.
FRÉTTIR21.08.2023, 11:00
Þór/KA hefur gefið það út að Hulda Ósk Jónsdóttir sé búin að skrifa undir nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2025.
FRÉTTIR21.08.2023, 10:18
Markvörðurinn Ben Foster hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna, aftur.
FRÉTTIR21.08.2023, 10:00
<p>Króatíski miðjumaðurinn Lovro Majer er orðinn þriðji dýrasti leikmaður í sögu þýska félagsins Wolfsburg eftir að félagið keypti hann fyrir rúmlega 25 milljónir evra.</p>
FRÉTTIR20.08.2023, 23:20
<p>Genoa er komið aftur upp í efstu deild á Ítalíu og er búið að styrkja leikmannahópinn sinn umtalsvert frá síðustu leiktíð.</p>
FRÉTTIR20.08.2023, 12:30
Spænski leikmaðurinn Sergi Canos er genginn til liðs við Valencia frá Brentford.
FRÉTTIR20.08.2023, 09:26
Bournemouth gekk í dag frá kaupum á bandaríska miðjumanninum Tyler Adams en hann kemur frá Leeds United.
FRÉTTIR20.08.2023, 07:30
Tyrkneski miðvörðurinn Merih Demiral er genginn í raðir Al-Ahli í Sádi-Arabíu en hann kemur frá Atalanta.
FRÉTTIR20.08.2023, 07:00
Heimsmeistarinn Lionel Messi er nú með flesta titla í sögu fótboltans eftir að hann og félagar hans í Inter Miami unnu deildabikarinn eftir dramatík í nótt.
FRÉTTIR19.08.2023, 23:31
Marokkómaðurinn Hakim Ziyech er genginn í raðir Galatasaray á láni frá Chelsea út þetta tímabil.
FRÉTTIR19.08.2023, 20:30
Al-Hilal hefur staðfest kaupin á serbneska framherjanum Aleksandar Mitrovic en hann kemur frá Fulham fyrir tæpar 50 milljónir punda.
FRÉTTIR18.08.2023, 22:24
Luciano Spalletti er nýr þjálfari ítalska karlalandsliðsins en þetta tilkynnti fótboltasambandið í dag.
FRÉTTIR18.08.2023, 21:32
Ragnar Sigurðsson mun stýra Fram út þetta tímabil en þetta staðfesti knattspyrnudeild félagsins í kvöld. Igor Bjarni Kostic mun vera honum til halds og trausts á hliðarlínunni.
FRÉTTIR18.08.2023, 19:29
Ítalski sóknartengiliðurinn Nicolo Zaniolo er kominn til Aston Villa á láni frá Galatasaray.