Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 05. janúar 2020 17:33
Ívan Guðjón Baldursson
Grikkland: Ögmundur fékk tvö á sig á rúmri mínútu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Xanthi FC 2 - 1 AEL Larissa
0-1 R. Milosavljevic ('64)
1-1 J. Faucher ('67)
2-1 J. Faucher ('68)

Ögmundur Kristinsson varði mark AEL Larissa sem heimsótti Xanthi FC í gríska boltanum.

Staðan var markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik og komust gestirnir yfir eftir leikhlé.

Heimamenn gáfu í og voru snöggir að snúa stöðunni við. Jordan Faucher skoraði þá tvennu framhjá Ögmundi á rúmri mínútu og heimamenn komnir yfir.

Meira var ekki skorað og svekkjandi tap Larissa staðreynd. Eitt stig skilur liðin að um miðja deild, Larissa er með 22 stig eftir 17 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner