Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   þri 09. janúar 2018 09:33
Magnús Már Einarsson
Iwobi sagður hafa verið í partí 36 tímum fyrir leik
Alex Iwobi.
Alex Iwobi.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Arsenal eru brjálaðir út í Alex Iwobi eftir frétt sem er á forsíðu slúðurblaðsins The Sun í dag.

Þar kemur fram að Alex Iwobi hafi verið í partí aðfaranótt laugardags, einungis 36 tímum áður en hann spilaði með Arsenal í 4-2 tapi gegn Nottingham Forest í enska bikarnum.

The Sun hefur einnig birt myndband sem sagt er vera frá því klukkan 2:37 aðfaranótt laugardags en þar sést Iwobi vera syngjandi og dansandi í partíinu í Soho í London.

Partýið var í íbúð í Soho hverfinu í London. Samkvæmt frétt Sun var fólk meðal annars að nota kannabis efni í partýinu en ekkert bendir þó til þess að Iwobi hafi gert slíkt.

Partíið stóð yfir til klukkan 3:30 en nágrannar kvörtuðu yfir hávaða á meðan á því stóð.

Iwobi fékk tækifæri í byrjunarliði Arsenal gegn Forest en bikarmeistararnir duttu þar óvænt úr leik.

Smelltu hér til að sjá myndbandið á vef The Sun
Athugasemdir
banner
banner
banner