„Þetta var bara árás og hrikalega gróft. Mig minnir að hann hafi fengið samskonar spjald í vetur á móti okkur þegar hann straujaði einhvern í leik í febrúar. Þetta er gjörsamlega galið. Hann getur stórslasað Alex og þá er ferillinn búinn. Þetta er svo heimskulegt, jesús minn almáttugur," sagði Rúnar í Pepsi Max stúkunni eftir leikinn, sem endaði 2-1 fyrir Stjörnunni.
Ólafur Ingi tjáir sig á Twitter undir færslu Jóhanns Skúla Jónssonar, þáttastjórnanda hlaðvarpsins Draumaliðsins. Færsla Jóhanns Skúla er svohljóðandi: „Án þess að ætla að verða einhver talsmaður þess að hætta að fara í skallabolta þá er fáránlegt að Danni Lax fái ekki gult spjald fyrir þetta Ragnars Braga atvik. Miðað við alla umræðu um höfuðmeiðsli ætti svona atvik að vera nær því að vera rautt spjald en ekkert spjald."
Ragnar Bragi tví kinnbeinsbrotnaði eftir samstuð við Daníel Laxdal, leikmann Stjörnunnar, seint í síðari hálfleik. Meiðslin eru áfall fyrir Fylkismenn en leikið er þétt í Pepsi Max-deildinni í sumar og ljóst er að Ragnar mun missa af þónokkuð mörgum leikjum.
Svo fékk Ólafur Ingi rautt spjald undir lok leiksins, en tæklingin hefur vakið mjög hörð viðbrögð.
„Er ekki vanur að tjá mig mikið á samfélagsmiðlum en nenni ekki að segja ekki neitt núna," segir Ólafur Ingi á Twitter. „Hræsnin í þessu öllu saman. Ég viðurkenni það fúslega að tækling mín gegn Stjörnunni var slök ef ekki arfaslök. Ég var alltof seinn og uppskar réttilega rautt spjald fyrir."
„Ég brást liðsfélögum og félagi mínu illa. Þó ég geti tæplega gert þær kröfur til Rúnars Páls þá reikna ég fastlega með því að meðalgreindir knattspyrnuáhugamenn átti sig á því að það var ekki ætlun mín að koma inn á völlinn til þess að slasa andstæðing og skilja liðsfélagana eftir manni færri. Þetta var einfaldlega illa tímasett og léleg tækling. Líklega ein af ótal mörgum sem koma til með að sjást á völlum landsins í sumar."
„Rúnar Páll fór mikinn eftir leik og fullyrti að þetta hafi verið árás af minni hálfu. Hann hefur sennilega aldrei upplifað það að einn af hans leikmönnum tímasetji tæklingu illa og uppskeri rautt spjald. Velti því fyrir mér hvort Rúnar Páll, sem er með krónískt hæsi eftir að hafa gargað samfleytt á íslenska dómara í sex ár, sé best fallinn til þess að taka sér hlutverk siðapostula… Velti líka fyrir mér hvernig framganga Daníels Laxdal horfir við honum. Daníel henti sér óheppilega í glórulaust einvígi gegn Ragnari Braga sem lá eftir tvíkinnbeinsbrotinn og verður frá í um sex vikur."
„Við Fylkismenn reyndum ekki að búa til histeríu í kringum návígi Daníels og Ragnars þó það sæju allir á vellinum að Daníel átti aldrei möguleika á að ná boltanum og að afrakstur framgöngu hans hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það hvarflar ekki að okkur á að ásaka Daníel um árás. Við getum gagnrýnt hann fyrir háskalegann leik og að fara í einvígi til þess eins að láta finna hraustlega fyrir sér - en árás tæplega. Fótbolti er líkamleg íþrótt, menn takast hressilega á, tækla og lenda í tæklingum. Það er ekki að fara að breytast og á meðan munum við sjá misheppnaðar tæklingar. Þá taka dómararnir í stjórnartaumana og beita sínum valdheimildum til þess að leikurinn fari fram innan ramma knattspyrnulaganna."
„Niðurstaða Guðmundar Ársæls og aðstoðarmanna í tengslum við mína tæklingu var rétt – þó ég frábiðji mér ásakanir Rúnars um árás. Niður af þínum háa hesti kæri Rúnar og líttu þér nær," skrifar Ólafur Ingi, spilandi aðstoðarþjálfari Fylkismanna.
Er ekki vanur að tjá mig mikið á samfèlagsmiðlum en nenni ekki að segja ekki neitt núna.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Hræsnin í þessu öllu saman, ég viðurkenni það fúslega að tækling mín gegn Stjörnunni var slök ef ekki arfaslök. Ég var alltof seinn og uppskar réttilega rautt spjald fyrir.
Ég brást liðsfélögum og félagi mínu illa. Þó ég geti tæplega gert þær kröfur til Rúnars Páls þá reikna ég fastlega með því að meðalgreindir knattspyrnuáhugamenn átti sig á því að það var ekki ætlun mín að koma inn á völlinn til þess að slasa andstæðing og skilja liðsfélagana
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
eftir manni færri. Þetta var einfaldlega illa tímasett og léleg tækling! Líklega ein af ótal mörgum sem koma til með að sjást á völlum landsins í sumar.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Rúnar Páll fór mikinn eftir leik og fullyrti að þetta hafi verið árás af minni hálfu.
Hann hefur sennilega aldrei upplifað það að einn af hans leikmönnum tímasetji tæklingu illa og uppskeri rautt spjald. Velti því fyrir mér hvort Rúnar Páll, sem er með krónískt hæsi eftir að hafa gargað samfleytt á íslenska dómara í sex ár,
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
sé best fallinn til þess að taka sér hlutverk siðapostula…Velti líka fyrir mér hvernig framganga Daníels Laxdal horfir við honum. Daníel henti sér óheppilega í glórulaust einvígi gegn Ragnari Braga sem lá eftir tvíkinnbeinsbrotinn og verður frá í um 6 vikur.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Við Fylkismenn reyndum ekki að búa til histeríu í kringum návígi Daníels og Ragnars þó það sæju allir á vellinum að Daníel ætti aldrei möguleika á að ná boltanum og að afrakstur framgöngu hans hafi haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Það hvarflar ekki að okkur á að ásaka Daníel um árás. Við getum gagnrýnt hann fyrir háskalegann leik og að fara í einvígi til þess eins að láta finna hraustlega fyrir sér - en árás tæplega.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Fótbolti er líkamleg íþrótt, menn takast hressilega á, tækla og lenda í tæklingum.
Það er ekki að fara að breytast og á meðan munum við sjá misheppnaðar tæklingar. Þá taka dómararnir í stjórnartaumana og beita sínum valdheimildum til þess að leikurinn fari fram innan ramma knattspyrnulaganna.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Er ekki vanur að tjá mig mikið á samfèlagsmiðlum en nenni ekki að segja ekki neitt núna.
— Olafur Ingi Skulason (@oliskulason16) June 18, 2020
Hræsnin í þessu öllu saman, ég viðurkenni það fúslega að tækling mín gegn Stjörnunni var slök ef ekki arfaslök. Ég var alltof seinn og uppskar réttilega rautt spjald fyrir.