Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 22. ágúst 2022 23:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skilur ekki í Van Dijk - „Þetta er svo skrýtinn varnarleikur"
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: EPA
Hollenski miðvörðurinn Virgil van Dijk átti ekki sinn besta dag þegar Liverpool tapaði fyrir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Van Dijk leit skelfilega út í fyrra marki Man Utd sem Jadon Sancho skoraði.

Hægt er að sjá markið með því að smella hérna.

Micah Richards, fyrrum varnarmaður Man City og fleiri félaga, skilur ekki alveg hvað Van Dijk var að hugsa í þessu atviki.

„Sancho fékk þrjár, fjórar sekúndur til þess að ákveða hvað hann ætlaði að gera. Van Dijk stóð þarna bara með hendur fyrir aftan bak. Þetta er svo ólíkt Van Dijk," sagði Richards.

„Þetta er svo skrýtinn varnarleikur. Liverpool er miklu betra lið með hann inn á, en hann hefur verið að gera mistök sem eru ólík honum. Hann er varnarmaður í heimsklassa en þetta er alveg ótrúlega skrítið."
Athugasemdir
banner
banner
banner