Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   þri 23. ágúst 2022 14:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martial sagði boltastráknum að slaka á - Það sem Klopp var ósáttur við
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Anthony Martial átti góða innkomu þegar Manchester United lagði Liverpool að velli í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld.

Hann lagði upp annað markið sem Marcus Rashford skoraði fyrir United í leiknum.

Martial hjálpaði svo liðinu að landa þessum góða sigri.

Í dag birtist áhugavert myndband af samfélagsmiðlum þar sem Martial hvetur boltastrák til að slaka á fyrir hornspyrnu - hann hvetur boltastrákinn til að hægja aðeins á því að gefa sér boltann.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, kvartaði yfir því eftir leik í gær að leikmenn United hefðu fengið mikið að tefja án þess að það væri tekið á því.

Hér að neðan má sjá myndbandið sem er núna í dreifingu á samfélagsmiðlum.


Athugasemdir
banner