Tanguy Ndombele var ekki í liði Tottenham sem lagði Brighton að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Jose Mourinho var spurður út í fjarveru hans að leikslokum og sagði hana stafa af hræðslu við frekari vöðvameiðsli.
„Ég get ekki sagt að hann sé meiddur því hann er það ekki. Í gær sagði hann við mig að honum liði ekki nægilega vel til að spila því hann væri smeykur um að lenda í vöðvameiðslum," sagði Mourinho.
„Hann hefur orðið fyrir tveimur, þremur eða fjórum vöðvameiðslum á leiktíðinni og honum leið ekki nógu vel til að byrja leikinn."
Mourinho var þá spurður út í framtíð Christian Eriksen og hljómaði eins og Daninn væri á leið burt frá félaginu.
„Ég veit hver framtíð hans er en það er ekki mitt hlutverk að segja frá. Bara hann getur sagt frá sínum framtíðaráformum. Við eigum mjög gott og opinskátt samband."
Athugasemdir