Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   lau 27. júní 2020 21:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. deild: KFS með þægilegan sigur á Afríku
Anton gerði út um leikinn fyrir KFS.
Anton gerði út um leikinn fyrir KFS.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Afríka 0 - 3 KFS
0-1 Hafsteinn Gísli Valdimarsson ('26)
0-2 Gauti Gunnarsson ('65)
0-3 Anton Bjarnason ('74)

KFS skellti sér á toppinn í A-riðli 4. deildar karla með sigri á útivelli gegn Afríku.

Hafsteinn Gísli Valdimarsson kom KFS yfir á 26. mínútu og var staðan 1-0 fyrir Vestmannaeyinga í leikhléi.

KFS kom svo inn í seinni hálfleikinn og gekk frá leiknum. Gauti Gunnarsson skoraði á 65. mínútu og bætti Anton Bjarnason við þriðja markinu á 74. mínútu leiksins.

KFS er með tvo sigra úr tveimur leikjum til þessa. Afríka hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.

Önnur úrslit:
4. deild: KH ekki í vandræðum á Ísafirði
Athugasemdir
banner
banner
banner