Eins og margoft hefur komið fram vann Ísland magnaðan sigur gegn Englandi í 16-liða úrslitum EM í gærkvöldi.
Fagnaðarlætin voru eðlilega ansi mikil meðal stuðningsmanna en það voru ekki síður leikmenn og starfsmenn liðsins sem fögnuðu ákaft eftir leikinn.
Hér að neðan má sjá stórskemmtilegt myndband af því þegar flautað var til leiksloka í gær. Þar má meðal annars sjá Heimi Hallgrímsson hoppa í fangið á Sigga Dúllu.
Athugasemdir