Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, segir í viðtali við mbl.is að hann og Guðjón Pétur Lýðsson hafi leyst ágreining sín á milli og að leikmaðurinn mæti á æfingu í kvöld.
Guðjón óskaði í fyrradag eftir að fá að fara frá Val en í gær þar sem hann var ósáttur við spiltíma sinn á tímabilinu til þessa. Í gærkvöldi sendi félagið frá sér yfirlýsingu þar sem var tilkynnt að Guðjón fari ekki fet.

Valur samþykkti tilboð frá bæði KA og ÍBV í Guðjón en hafnaði hins vegar tilboði frá KR.
„Við Guðjón Pétur urðum ósammála og það varð ágreiningur á milli okkar en ég hafði svo samband við hann í gærkvöld og sagði honum að hann færi ekki neitt," sagði Óli Jó við mbl.is.
„Ég boðaði hann á minn fund og við ræddum saman í morgun. Við erum búnir að leysa málin og hann mætir á æfingu í dag eins ekkert hafi í skorist."
Sjá einnig:
Tryggvi G: Heppnaðist ekki jafn vel og Guðjón ætlaði sér
Athugasemdir