Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25133 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.09.2024, 17:30

Hull fær fyrrum leikmann Brighton (Staðfest)

Hull City í ensku Championship-deildinni hefur fengið Steven Alzate í sínar raðir. Alzate lék síðast með Brighton en samningur hans við úrvalsdeildarfélagið rann út í sumar. Þar sem hann var án félags gat hann samið við annað félag utan félagaskiptaglugga. Hann er 26 ára miðjumaður sem á aðbaki sjö landsleiki fyrir Kólumbíu.

FRÉTTIR10.09.2024, 12:00

Victor Moses til Luton (Staðfest)

Luton Town, sem spilar í ensku Championship-deildinni, tilkynnti í morgun að Victor Moses væri orðinn nýr leikmaður félagsins. Moses hefur verið án félags frá því að samingur hans við Spartak Moskvu rann út í sumar. Þar sem hann var án félags gat hann samið við félag utan félagaskiptaglugga. Moses er 33 ára og var í fjögur ár í Moskvu, fyrst á láni frá Chelsea en skipti svo alfarið yfir. Hann lék á sínum tíma 38 leiki fyrir Nígeríu og skoraði tólf mörk.

FRÉTTIR10.09.2024, 08:00

Spennandi tímar hjá ÍR - „Tækifæri að stækka klúbbinn enn meira“

Árni Freyr Guðnason og Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfarar ÍR, voru að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Eftir undirskriftina fóru þeir báðir í viðtal og ræddu nánar um framtíð liðsins.

09.09.24 22:24
Þjálfarateymi ÍR framlengir (Staðfest) - Náð frábærum árangri

FRÉTTIR10.09.2024, 06:00

Memphis til Corinthians (Staðfest)

Memphis Depay er formlega genginn til liðs við brasilíska félagið Corinthians. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR06.09.2024, 06:00

Veselin tekur við Fjölni (Staðfest)

Veselin Chilingirov, kallaður Vesko, er tekinn við sem þjálfari Fjölnis, sem leikur í 2. deild, af Magnúsi Hauki Harðarsyni sem sagði upp störfum í síðasta mánuði.

FRÉTTIR05.09.2024, 19:26

Al-Ittihad kynnti Bergwijn til leiks (Staðfest)

Steven Bergwijn er formlega genginn til liðs við sádí-arabíska félagið Al-Ittihad frá hollenska félaginu Ajax.

Al-Ittihad borgar rúmlega 20 milljónir evra fyrir hann.

FRÉTTIR04.09.2024, 23:16

Anton Logi: Svekkjandi að missa Óskar

„Bara mjög spennandi. Aðeins öðruvísi að koma heim þegar maður spilar erlendis. Extra góð tilfinning að koma heim, hitta fjölskyldu og vini og svona, en síðan er þetta bara fókus á leikina sem eru hérna. Þetta eru tveir mjög mikilvægir leikir og ef við náum í góð úrslit þá erum við í mjög góðri stöðu í þessum riðli,“  sagði U21 árs landsliðsmaðurinn Anton Logi Lúðvíksson í samtali við Fótbolta.net í dag.

FRÉTTIR04.09.2024, 19:00

Mats Hummels til Roma (Staðfest)

Ítalska félagið Roma hefur staðfest komu þýska varnarmannsins Mats Hummels en hann gerði eins árs samning við félagið.

FRÉTTIR04.09.2024, 16:26

Osimhen kynntur hjá Galatasaray (Staðfest) - Mættur á grímuball

Nígeríski framherjinn Victor Osimhen er formlega genginn í raðir Galatasaray og mun leika með tyrkneska liðinu á láni frá Napoli út þetta tímabil. Í kynningarmyndbandi tyrkneska félagsins mætir Osimhen á grímuball. Osimhen er þekktur fyrir að leika með andlitsgrímu, hann þurfti að nota hana fyrir tveimur árum og hefur haldið áfram að gera það. Í lok myndbandsins sést svo Osimhen benda á Evrópudeildarbikarinn og segir svo 'we are the best' eða við erum bestir. Það gefur til kynna að stefna Galatasaray sé að vinna Evrópudeildina í vetur en liðinu mistókst að ná Meistaradeildarsæti síðasta vor. Osimhen verður í treyju númer 45 hjá Galatasaray. Í tilkynningu tyrkneska félagsins er tekið fram að félagið greiði honum 6 milljónir evra í laun fyrir tímabilið, eða rúmlega 900 milljónir íslenskra króna.

FRÉTTIR04.09.2024, 06:00

Armstrong til Vancouver Whitecaps (Staðfest)

Stuart Armstrong er genginn til liðs við Vancouver Whitecaps sem leikur í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Hann skrifar undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR03.09.2024, 21:20

Steve Bruce ráðinn stjóri Blackpool (Staðfest)

Steve Bruce hefur verið ráðinn stjóri Blackpool sem leikur í ensku C-deildinni. Hann tekur við af Neil Critchley sem var rekinn eftir að liðið tapaði tveimur fyrstu leikjunum í deildinni. Liðið er með tvö stig eftir fjórar umferðir.

FRÉTTIR03.09.2024, 15:00

Jamal Lewis til Sao Paulo á láni (Staðfest)

Jamal Lewis hefur gengið í raðir brasilíska félagsins Sao Paulo á láni frá Newcastle. Hann er fyrsti Bretinn sem gengur í raðir þessa sögufræga félags.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.