Fulham kaupir arftaka Tosin (Staðfest)

Jorge Cuenca hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Fulham með möguleika á öðru ári í viðbót.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25140 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Jorge Cuenca hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Fulham með möguleika á öðru ári í viðbót.

Bergrós Ásgeirssdóttir hefur gengið til liðs við svissneska úrvalsdeildarliðsins FC Aarau frá Arezzo sem leikur í ítölsku B-deildinni. Bergrós er uppalin á Selfossi.

Norksi landsliðsmaðurinn Alexander Sørloth hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Atlético Madrid.

Robin Le Normand er genginn til liðs við Atletico Madrid. Hann skrifar undir fimm ára samning.

Brasilíski bakvörðurinn Yan Couto er genginn til liðs við Dortmund frá Manchester City.

Manchester United hefur keypt sænska leikmanninn Önnu Sandberg frá sænska liðinu BK Häcken.

Brasilíski miðjumaður Chelsea, Andrey Santos, hefur gengið til liðs við Strasbourg á ný á láni út tímabilið.

Belgíski þjálfarinn Philippe Clement skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við skoska stórveldið Rangers. Belginn tók við liðinu á miðju tímabili í fyrra og gerði vel með liðið til að byrja með og vann meira að segja skoska deildarbikarinn.

Hann náði þó ekki erkifjendunum í Celtic í deildinni og tapaði einnig gegn þeim í bikarúrslitum skoska FA bikarsins. Rangers endaði í 2. sæti í deildinni á eftir Celtic sem gjörsamlega rústaði deildinni.

Ipswich hefur gengið frá kaupunum á vinstri bakverðinum Conor Townsend. Townsend, sem er 31 árs, kemur frá WBA og er sagt að úrvalsdeildarfélagið greiði 500 þúsund pund fyrir leikmanninn. Hann hitti nýju liðsfélaga sína í Þýskalandi í gær en þar er Ipswich í æfingaferð. Hann skrifar undir tveggja ára samning.
Úkraínski sóknarmaðurinn Artem Dovbyk er kominn í Roma. Stuðningsmenn Roma fagna þessum tíðindum enda raðaði Dovbyk inn mörkum fyrir Girona á síðasta tímabili og endaði með gullskóinn í La Liga sem markahæsti maður spænsku deildarinnar. Ítalskir fjölmiðlar segja Rómverja kaupa Dovbyk á 30,5 milljónir evra og sú upphæð gæti hækkað um 5,5 milljónir evra í árangurstengdum greiðslum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson var í gær tilkynntur sem þjálfari KR. Hann tekur við liðinu eftir tímabilið en kemur nú inn í þjálfarateymið - verður Pálma Rafni Pálmasyni til aðstoðar út tímabilið.
Crystal Palace hefur keypt vængmanninn Ismaila Sarr frá Marseille fyrir um 12,5 milljónir punda. Þessi 26 ára leikmaður skrifaði undir fimm ára samning. „Ég vil þakka þjálfaranum og íþróttastjóranum. Þeir sögðu mér frá verkefninu og ég var hrifinn," sagði Sarr.
Fulham hefur staðfest kaup sín á Emile Smith Rowe sem kemur frá Arsenal. Um metkaup er að ræða hjá Fulham en félagið hefur aldrei greitt hærri upphæð fyrir leikmann. Fulham staðgreiðir 27 milljónir punda og svo eru árangurstengdar greiðslur sem geta ýtt kaupverðinu upp í 34 milljónir punda.
Dalvík/Reynir tilkynnti í dag að félagið hefði gert samkomulag við framherjann Abdeen Abdul á riftun á samningi. Hann hefur því leikið sinn síðasta leik fyrir félagið. Alls lék hann níu leiki í Lengjudeildinni í sumar og skoraði fjögur mörk. Hans síðasti leikur var gegn Leikni í lok júní. Hann er 29 ára Íri sem var samningsbundinn D/R út tímabilið.
Það hefur ótrúlega mikið gengið á í þjálfaramálum KR á einu ári, frá því að ákveðið var að láta Rúnar Kristinsson fara. Umdeild ráðning á Gregg Ryder reyndist röng ákvörðun og í gær var tilkynnt að Óskar Hrafn Þorvaldsson myndi taka við eftir yfirstandandi tímabil. KR er í fallbaráttu og gríðarlega áhugaverðar vikur framundan. Til að reyna að setja allt í samhengi sem hefur gengið á bak við tjöldin í Vesturbænum er hér sérstök tímalína með því sem gerðist eftir að tilkynnt var að Rúnar væri á förum.
Ítalska C-deildarfélagið SPAL hefur keypt Óttar Magnús Karlsson frá Venezia. SPAL er í sömu deild og Vis Pesaro, liðið sem Óttar lék með á síðasta tímabili á láni frá Venezia. SPAL endaði um miðja C-deildina á síðasta tímabili og vonast til þess að Óttar hjálpi því að klífa ofar. Óttar Magnús er 27 ára sóknarmaður. Hann á að baki ellefu landsleiki og í þeim hefur hann skorað tvö mörk.
Valur hefur rekið Arnar Grétarsson úr starfi. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa. Þetta eru ansi óvænt tíðindi en þau koma eftir að Valur tapaði gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Nani, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur gengið í raðir portúgalska úrvalsdeildarfélagsins Estrela da Amadora á frjálsri sölu. Nani er 37 ára og hefur víða komið við á sínum ferli. Síðustu félagslið hans hafa verið Orlando City, Venezia, Melbourne Victory og Adana Demirspor. Hann lék 34 leiki með síðastnefnda liðinu á síðasta tímabili.

Aron Einar Gunnarsson var kynntur sem leikmaður Þórs í Hamri, félagsheimili félagsins, rétt í þessu en margir stuðningsmenn liðsins voru mættir til að taka á móti honum. Hann skrifar undir tveggja ára samning.

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands, hefur verið formlega kynnt hjá liði Al Qadsiah í Sád-Arabíu. Hún er kynnt sem stjarna sem muni skína skært fyrir félagið. Al Qadsiah endaði í fjórða sæti af átta liðum í efstu deild kvenna í Sádi-Arabíu en það hefur ekki farið framhjá neinum að engu hefur verið til sparað til að koma fótboltanum á kortið í landinu. Sara Björk var án félags eftir að samningur hennar við Juventus rann út í sumar. Sara er 33 ára og lék 145 landsleiki fyrir Ísland, og skoraði 24 mörk, á árunum 2007-2022.